Dansþing 2026

Hér koma öll gögn dansþings 2026

Fundargögn eru rafræn.

Dansþing Dansíþróttasambands Íslands 2026 haldið 18. maí 2026 kl. 18.00, í fundarsölum ÍSÍ að Engjavegi 6 í Laugardal, Reykjavík.

Dagskrá Dansþings samkvæmt lögum DSÍ:

  1. Þingsetning og staðfesting á lögmæti þingsins í samræmi við lög DSÍ.
  2. Kosning þingforseta og þingritara.
  3. Kosning þriggja manna kjörbréfanefndar.
  4. Skýrsla stjórnar.
  5. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram og skýrðir.
  6. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga sambandsins.
  7. Skýrsla stjórnar og reikningar sambandsins borin undir atkvæðagreiðslu.
  8. Fjárhagsáætlun næsta fjárhagsárs.
  9. Ávörp gesta.
  10. Tillögur mótanefndar um tímasetningar dansíþróttamóta DSÍ næsta keppnistímabil.
  11. Tillögur um breytingar á lögum teknar til afgreiðslu. Fellur niður engar tillögur.
  12. Kosning stjórnar, varastjórnar og skoðunarmanna reikninga samkvæmt tillögum uppstillingarnefndar.
  13. Kosning fulltrúa á Íþróttaþing ÍSÍ.
  14. Önnur mál
  15. Þingslit.

Ársreikningur 2025

Tillaga mótanefndar um mótin 2026-2027

Skýrsla stjórnar 2025-2026