Aron Davíð og Freyja Örk náðu frábærum árangri á HM í 10 dönsum ungmenna í Elbląg í Póllandi.

Parið hafnaði í 14. sæti af 30 keppnispörum frá 30 þjóðum, aðeins einu sæti frá undanúrslitum!

Þetta er besti árangur íslensks ungmennapars í langan tíma og sérstaklega ánægjulegt að sjá þau tryggja sér sæti á meðal 16 bestu para heims!

Danssamband Íslands óskar þeim innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur og frábæra frammistöðu! 🇮🇸❤️