Dansparið Nicolò Barbizi og Sara Rós Jakobsdóttir varð heimsmeistari í 10 dönsum um helgina í atvinnumannaflokki á WDO-heimsmeistaramótinu. Mótið fór fram samhliða Iceland Dance Festival í Garðabæ.

Þetta er aðeins í annað sinn sem Íslendingar eignast heimsmeistara í atvinnumannaflokki í 10 dönsum en það gerðist síðast fyrir 23 árum þegar Karen Björgvinsdóttir og Adam Reeve fögnuðu heimsmeistaratitli.

Sara Rós Jakobsdóttir og Nicolo Barbizi

Nicolò og Sara hafa dansað saman í tíu ár og hafa átt það markmið saman frá upphafi. Þau hafa búið og æft í Árósum í Danmörku síðasta áratuginn og keppt fyrir hönd Íslands á alþjóðlegum stórmótum víðs vegar um heiminn.

Þetta var í fyrsta sinn sem keppt er um heimsmeistaratitil í samkvæmisdönsum á Íslandi og því sérstaklega þýðingarmikið fyrir þau Söru Rós og Nicolò og vinna á heimavelli.