Um síðustu helgi fóru fram æfingar hjá landsliði Dansambands Íslands og hópi ungra og efnilegra dansara í kjölfar Lottó-mótsins.




Gaman var að sjá dansarana koma saman, æfa af krafti og leggja metnað í áframhaldandi framfarir. Slíkar æfingar eru mikilvægur þáttur í uppbyggingu dansíþróttarinnar og gefa dönsurunum tækifæri til að efla færni sína, öðlast reynslu og styrkja liðsheildina.
Við þökkum öllum dönsurum og þjálfurum fyrir góða æfingu og hlökkum til að fylgjast með áframhaldandi framförum hópsins.
Áfram íslensk dansíþrótt!