Aron Davíð og Freyja Örk náðu frábærum árangri á HM í 10 dönsum ungmenna í Elbląg í Póllandi.
Parið hafnaði í 14. sæti af 30 keppnispörum frá 30 þjóðum, aðeins einu sæti frá undanúrslitum!
Þetta er besti árangur íslensks ungmennapars í langan tíma og sérstaklega ánægjulegt að sjá þau tryggja sér sæti á meðal 16 bestu para heims!
Danssamband Íslands óskar þeim innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur og frábæra frammistöðu! ![]()
![]()