Heimsmeistarar !
Eiður Fannar Gapunay og Soffía Ísabella Bjarnadóttir urðu um helgina heimsmeistarar í samkvæmisdönsum í flokki unglinga 16 ára og yngri hjá WDO.
Keppnin var í 10 dönsum, þar sem samanlagður árangur í standard- og suðuramerískum dönsum ræður úrslitum. Með sigri sínum bættu þau enn einum titlinum í safnið en þau eru jafnframt Íslands- og bikarmeistarar í standarddönsum, suðuramerískum dönsum og 10 dönsum í flokki Unglinga II.
Fyrr á árinu náðu þau 5. sæti á Norður-Evrópumeistaramótinu í Tallinn í Eistlandi í suðuramerískum dönsum. Þau eru einnig í A-landsliði Dansíþróttasambands Íslands (DSÍ) ), sem skipað er fremstu dönsurum landsins.
Eiður og Soffía eru talin vera eitt efnilegasta danspar landsins og hafa með árangri sínum sýnt að þau eiga bjarta framtíð fyrir sér á alþjóðlegum vettvangi. Heimsmeistaratitillinn er glæsileg viðurkenning á þeirri vinnu sem þau hafa lagt í íþróttina.