Ólympíuævintýri í Grikklandi í sumar fyrir 20-30 ára!

Hefur þú áhuga á að taka þátt í tveggja vikna
Ólympíuævintýri í Grikklandi í sumar?

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir eftir tveimur
þátttakendum, kven- og karlkyns, á námskeið ungs íþróttafólks
(20 til 30 ára) á vegum Alþjóða Ólympíuakademíunnar í Ólympíu
í Grikklandi dagana 10.- 22. júní næstkomandi. Að þessu sinni er
aðal umfjöllunarefnið „Nýsköpun í kennslu íþrótta og fræðslu
um ólympísk gildi og hvernig getur Ólympíuhreyfingin laðað til
sín ungt fólk“. Þetta er einstakt tækifæri til að kynna sér
starfsemi Alþjóða Ólympíuakademíunnar ásamt því að taka þátt
í umræðum um gildi og hugsjónir Ólympíuhreyfingarinnar.
Flugferðir, gisting og uppihald eru þátttakendum að kostnaðarlausu.
Leitað er að einstaklingum sem náð hafa mjög góðum árangri í
íþróttagrein (-greinum) og/eða sinnt
kennslu/þjálfun/félagsstörfum innan íþróttahreyfingarinnar,
ásamt því að sýna málefnum Ólympíuhreyfingarinnar sérstakan
áhuga. Umsækjandi þarf að hafa gott vald á ensku og/eða frönsku
og vera fyrirmynd annars æskufólks í hvívetna.

Þátttakendur taka þátt í alþjóðlegu námskeiðahaldi í tæpar
tvær vikur og búa á heimavist Alþjóða Ólympíuakademíunnar í
Ólympíu. Unnið er í lotum fyrir hádegi sem gjarnan lýkur á
umræðum. Að því loknu er ýmislegt gert til að hrista hópinn
saman; keppt í allskonar íþróttum, farið á ströndina og í
skoðunarferðir. Reynsla þeirra sem hafa farið er að þau hafa
öðlast dýpri skilning á sögu Ólympíuleikanna, fyrir hvað
Ólympíuhugsjónin stendur og hvernig megi miðla þeirri þekkingu
áfram. Það dýrmætasta hafi þó verið vináttuböndin sem
þátttakendur mynda að lokinni tveggja vikna dvöl. Eins og þau
sögðu sem fóru í fyrra að þetta var eins og sumarbúðir fyrir
fullorðna sem hafa áhuga á íþróttum og fræðslu.
Umsóknarfrestur er til 25. apríl

Skráning fer fram hér;

https://www.isi.is/fraedsla/olympiuakademian/

Nánar um IOA (International Olympic Academy) og aðsetur þátttakenda
í Ólympíu í Grikklandi. Sjá myndir frá staðnum meðal annars.

https://www.ioa.org.gr/the-academy/premises [1]

Hér má nálgast instagramstories frá þátttakendum sem fóru í
fyrra þar sem þau deila frá reynslu sinni og sýna svipmyndir.

Part 1:https://www.instagram.com/stories/highlights/18218802901199612/

Part 2: https://www.instagram.com/stories/highlights/18126302425303510/
[2]

Frekari upplýsingar veitir Þórarinn Alvar Þórarinsson,
sérfræðingur á Fræðslu-og almenningsíþróttasviði ÍSÍ, í
sími 514 4000 eða á alvar@isi.is.