Heimsmeistaramót WDSF í standard dönsum Brno

Nú um helgina fer fram heimsmeistaramót WDSF í standard dönsum í Brno Tékklandi. Ásamt því eru opin mót í öllum flokkum.

Ísland sendir 2 dansíþróttapör á mótið og verður gaman að fylgjast með gengi þeirra. Hægt verður að horfa á mótið hér:

https://www.dancesporttotal.com/Event/Detail/2021-wdsf-world-championship-standard-brno-179?utm_source=facebook&utm_medium=socialmedia&utm_campaign=brnostandadchamp

Hér má sjá ýmsar upplýsingar um dansíþróttapörin sem keppa.

Rebekka Rós Ragnarsdóttir og Stefano Gentile

Nú eruð þið að fara á stórmót á vegum Dansíþróttasambands Íslands, hvernig eruð þið búin að vera æfa upp á síðkastið?
 Upp á síðkastið höfum við æft 3-4 klukkutíma á dag.  Blöndum saman tækniæfingum og þrekæfingum.
 
Hvað finnst ykkur mikilvægt að gera á keppnisdegi?
Okkur finnst mikilvægt að hvílast vel nóttina fyrir keppnisdag og vakna tímanlega í undirbúning eins og förðun og hárgreiðslu.  Við hugsum vel um næringu á keppnisdegi og andlegu hliðina.
 
Hvenær byrjuðuð þið að dansa?
Við byrjuðum að dansa á barnsaldri og höfum dansað saman í um 2 ár.
 
Hver eru ykkar fyrirmyndir í dansinum?
Við eigum margar fyrirmyndir sem eru þá helst kennararnir okkar.
 
Nú eruð þið búin að keppa mikið erlendis, hvaða mót hafið verið að keppa á? Á þessu ári kepptum við á Íslandsmeistaramótinu í Standard dönsum sem haldið var í lok maí og lentum þar í öðru sæti.  Einnig kepptum við í Blackpool í lok ágúst.
 
Ef þið ættuð að ráðleggja ungum dansáhugamönnum, hverjar væru þær? Einfalt, elta drauminn um að verða dansari og leggja á sig mikla vinnu.

Laufey Þóra Th. Guðbjörnsdóttir og Kolbeinn Sturla Baldursson

Nú eruð þið að fara á stórmót á vegum Dansíþróttasambands Íslands, hvernig eruð þið búin að vera æfa upp á síðkastið? Við erum búin að bæta við aukalega þrek- og tæknitíma ofan á venjulegar æfingar sem eru 6 daga vikunnar. Fyrirvarinn fyrir þetta mót var mjög stuttur og við þurftum að bregðast hratt við breyttu æfingaplani.

Hvað finnst ykkur mikilvægt að gera á keppnisdegi? Hita vel og tímanlega upp, sofa vel nóttina fyrir mót og borða nóg.

Hvenær byrjuðuð þið að dansa? Kolbeinn: Þegar ég var 11 ára, Laufey Þóra: Þegar ég var 5 ára

Hver eru ykkar fyrirmyndir í dansinum? Þjálfararnir okkar.

Ef þið ættuð að ráðleggja ungum dansáhugamönnum, hverjar væru þær? Byrja snemma að æfa með ákveðin markmið í huga þannig æfingarnar skili sem mestu og æfa sjálf aukalega fyrir/eftir einkatíma.