Íslandsmeistaramótið í 10 dönsum og bikarmeistaramót

Um helgina fóru fram Íslandsmeistaramótið í 10 dönsum og bikarmeistaramót ásamt opnum mótum í samkvæmisdansi. Mótin voru haldnir í Íþróttahúsinu í Strandgötu og þar var stigin tignarlegur dans í bland við suðrænar sveiflur. Mótinu var streymt í beinu streymi þar sem áhorfendur voru því miður ekki í húsinu að þessu sinni og sýndi RÚV frá mótinu í íþróttafréttum sínum. Gaman var að fá erlenda dómara til að mæta ásamt íslensku dómurunum sem og 1 erlent par keppti. Frábært var að sjá öll pörin sem sprettu sig í opnu keppnunum og voru þær keppnir einnig mjög sterkar.

Sara Rós Jakobsdóttir og Nicolo Barbizi urðu hlutskörpust í íslandsmeistaramótinu í 10 dönsum í fullorðinsflokki. Á þessu móti var einnig keppt í fyrsta skiptið í stjörnuflokki sem að er afar ánægjulegt. Eins gáfu Adam og Karen fyrrum heimsmeistarar í 10 dönsum Sverri Þór og Ágústu Rut farandbikar þar sem þau unnu unglinga II 10 dansa.

Helstu úrslit voru þessi:

Fullorðnir 10 dansar

1.Nicolo Barbizi – Sara Rós Jakobsdóttir Dansíþróttafélag Hafnafjarðar
2.Hilmar Már Sigurpálsson – Freydís María Sigurðardóttir  Dansdeild HK
3. Bragi Geir Bjarnason – Magdalena Eyjólfsdóttir    Dansíþróttafélag Kópavogs
4.  Ingólfur Bjartur Magnússon – Auður Elín Gústavsdóttir    Dansfélagið Hvönn
5. Kolbeinn Sturla Baldursson – Laufey Þóra Th. Guðbjörnsdóttir    Dansíþróttafélag Kópavogs

Frekari úrslit má einnig finna hér

http://www.dsi.is/images/mappa/Mars2021/index.htm

Myndir frá Örvari Möller er að finna hér https://www.flickr.com/photos/orvarm/albums/with/72157718644637343