Íslands- og bikarmeistaramót 20.-21. mars 2021

Íslandsmeistaramót í 10 dönsum og bikarmeistaramótið í hæsta getustigi í grunnsporum verður haldið um helgina 20.-21. mars nk. Mótið verður haldið samkvæmt samþykktum sóttvarnarreglum DSÍ. Við óskum öllum góðs gengis og vonum að allir skemmti sér konunglega.

Rennsli: Rennsli mars mótsins

Keppendalisti: Hér má sjá hverjir keppa í hvaða flokki og hvenær

Streymi: Marsmótið

Þetta eru lifandi skjöl og biðjum við ykkur um að skoða ávallt nýjasta skjalið.

Facebooksíða mótsins

Dómarar mótsins verða

Auður Haraldsdóttir

Edgar Konráð Gapunay

Haukur Ragnarsson

Hildur Ýr Arnarsdóttir

Jóhann Gunnar Arnarsson (Sunnudagur að hluta)

Kara Arngrímsdóttir

Kristina Juel Stokkebroe

Ólafur Magnús Guðnason

Peter Stokkebroe

Keppendur mega mæta 15 mín eftir verðlaunaafhendingu sótthólfsins á undan ekki fyrr. Grímuskylda er á staðnum og 1 metra reglan. Fylgdarmenn verða að halda sér til hlés og sitja í sínum sætum. Þjálfarar mega hvetja og sinna keppendum. Minnum á sprittið.

Sömu sóttvarnarhólf verða á staðnum og var á Lottó 2021