Stjörnuflokkur á keppnum DSÍ

Á stjórnarfundi 23. október 2019 var ákveðið að bjóða fólki með fötlun
velkomið í keppnir á vegum Dansíþróttasambands Íslands. Búinn var til
sérstakur keppnis/sýningar flokkur sem nefnist stjörnuflokkur þar sem
fólk með fötlun getur komið og sýnt afraksturs dansæfinga sinna og
fengið verðlaun fyrir.  Eins er alltaf leyfilegt að keppa eða sýna í
öðrum flokkum dansíþróttarinnar. Til þess að skrá sig á dansmót á
vegum Dansíþróttasambands Íslands þurfa iðkendur að vera skráðir hjá
dansíþróttafélögum. Við hvetjum áhugasama um að skrá sig í dans og
keppa í stjörnuflokki á komandi ári 2020. Bjóðum alla velkomna.