Axel og Darya með tvöfaldan sigur í Úkraínu
![](https://dsi.is/wp-content/uploads/2019/02/51638561_1258708267639738_2400848600629248000_n.jpg)
Axel Kvaran og Darya Kochkina kepptu í gær á Starligth Grand Prix Cup í Kiev, sem er stærsta og sterkasta keppnin í Úkraínu. Unnu Youth I & II Rising star og urðu í 10. sæti í Youth I þar sem þau kepptu við bestu pör í heimi.
Þau unnu einnig Youth I Rising Star og urðu í 5. sæti í Youth I í Ukrainian Cup danskeppninni um síðustu helgi.