Tvöfaldir RIG meistarar

Danskeppni Reykja­vík­ur­leik­anna fór fram í Laug­ar­dals­höll um helgina. Um 138 manns tóku þátt þar af 4 sterk pör frá Portúgal og 5 frá Banda­ríkj­un­um. Krist­inn Þór Sig­urðsson og Lilja Rún Gísla­dótt­ir unnu erlendu keppendurna í latin fullorðnum eftir mjög sterka keppni. Gylfi Már Hrafns­son og María Tinna Hauks­dótt­ir unnu ungmenni ballroom. Guðjón Erik Óskarsson og Eva Karen Ólafsdóttir urðu tvöfaldir RIG meistarar, unnu Juveniles II í bæði latin og ballroom dönsum.
Aldas Zgirskis og Demi van de Berg fengu verðlaun fyrir hæstu stigin á mótinu. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson ásamt Ingvari Sverrissyni formanni Íþróttabandalags Reykjavíkur veittu þeim verðlaunin.