
Dansíþróttasamband Íslands
Dansíþróttasamband Íslands er samband allra héraðssambanda og íþróttabandalaga innan ÍSÍ sem hafa innan sinna vébanda félög er iðka, æfa og keppa í dansíþróttum.
Nýjustu fréttir

Heimsmeistaramót í Junior II latín WDSF
Núna á laugardaginn 4.júni verður haldið heimsmeistaramót Junior II í Bremen Þýskalandi. Ísland sendir 4 fulltrúa á mótið. Það eru þau Alexander Karl Þórhallsson og Katrín Rut Atladóttir úr Dansdeild HK og Viðar Snær Hilmarsson og Hrafnhildur Eva Davíðsdóttir einnig...

Frábær árangur í Blackpool
Nú er í gangi Blackpool Dance festival í Englandi þar sem flest sterkustu pör heims etja saman kappi í samkvæmisdönsum. Þau Alex Freyr Gunnarsson og Ekaterina Bond frá Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar náðu 2. sætinu í Amateur Ballroom af tæplega 100 pörum í Blackpool....
Landslið
Fréttir
Úrslit móta
Mótaskráning
Lög og Reglur
DANSMÓT DSÍ 2027
Janúar mót 24 . janúar 2027:
Íslandsmeistaramót í meistaraflokki - Standard
Bikarmót í meistaraflokki - Latin
Grunnsporamót
Mars mót 13. mars 2027:
Íslandsmeistararmót í meistaraflokki - Latin
Bikarmót í meistaraflokki - Standard
Grunnsporamót
Bikarmót í efsta getustigi
10 dansa mót 24.-25. apríl 2027:
Íslandsmeistararmót í 10 dönsum
Grunnsporamót
Íslandsmót í efsta getustigi
DSÍ Open - Latin
DSÍ Open - Standard
Skráningarsíða DSÍ
Ef þið hafið spurningar, ekki hika við að senda e-mail á dsi@dsi.is
Dansíþróttapar ársins 2025

Dansíþróttasamband Íslands hefur kosið Nikita Bazev og Hönnu Rún Óladóttur Bazev frá Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar sem Dansíþróttapar ársins 2025.
Þau dansa í flokki fullorðinna atvinnumanna í latin dönsum.
Árið 2025 hefur verið viðburðarríkt hjá Nikita og Hönnu Rún og þeirra helsti árangur þessa árs er eftirfarandi:
- Íslandsmeistarar í latin dönsum atvinnumanna
- 3. sæti á evrópumeistaramóti WDSF
- 5. sæti á heimsmeistaramóti WDSF
- 1. sæti á heimslista í sínum flokki 5.428 stig.
Stjórn DSÍ óskar dansíþróttapari ársins 2025 sem og öllum pörum sem tilnefnd voru til hamingju með árangurinn og bjarta framtíð

Dansíþróttasamband Íslands
Engavegi 6
104, Reykjavik Iceland
dsi@dsi.is