Laugardaginn 24. janúar var haldið Íslandsmeistaramót í standard dönsum og eignuðumst við nýja íslandsmeistara í öllum flokkum.

Var þetta mót haldið í samstarfi við RIG og tókst mótið með eindæmum vel. Mikið var um dýrðir á mótinu sem byrjaði á barnaflokkum um morguninn og stóð fram á köld sem endaði með beinni útsendingu á RÚV. RÚV stóð sig með prýði að dreifa gleðinni um allt land.

Íslandsmeistarar í hverjum flokki 2026 eru:

Atvinumenn

Nicolo Barbizi og Sara Rós Jakobsdóttir, DÍH

Fullorðnir

Daníel Sverrir Gunnbjörnsson og Freydís María Sigurðardóttir, Hvönn

Ungmenni

Aron Davíð Óskarsson – Freyja Örk Sigurðardóttir,  DR

Unglingar II

Eiður Fannar Gapunay og Soffía Ísabella Bjarnadóttir, DÍK

Unglingar II Sóló

Guðrún Helga Árnadóttir, DR

Unglingar i Sóló

Freyja Dís Dagmarardóttir, DR