Dansþing DSÍ 2024

Dansþing Dansíþróttasambands Íslands fór fram í fundasal ÍSÍ í Íþróttamiðstöðinni Laugardal, fimmtudaginn 23. maí. Alls 53 þingfulltrúar frá 5 félögum hafa rétt til setu á þinginu, en 47 þeirra mættu á þingið. Farið var yfir hefðbundin þingstörf. Valdimar Leó Friðriksson stjórnaði þinginu vel.

Kristín Skjaldardóttir samskiptaráðgjafi ávarpaði þingið með fyrirlestri um starf ráðgjafans til kynningar fyrir alla. Hafsteinn Pálsson færði svo DSÍ kveðjur frá ÍSÍ.

Undir önnur mál voru skemmtilegar umræður og var stjórn DSÍ færður undirskriftalisti um víkkun á klæðareglum sem og rædd voru dómaramál, afrekssjóðsstyrki og fleira.

Kosið var um tvo stjórnarmenn í aðalstjórn að þessu sinni. Kara Arngrímsdóttir og Sigurður Hrannar Hjaltason voru kjörnir til 2 ára en Kara sat fyrir í stjórn, Sigurður kemur nýr í stjórn. Helga Björg Gísladóttir var áframkjörin formaður DSÍ en er hún að hefja sitt annað ár. Ólafur Már Hreinsson og Atli Már Sigurðsson eru á seinna ári sínu í stjórn.Varamennirnir voru endurkjörnir þau Árni Sigurgeirsson og Þórunn Anna Ólafsdóttir kjörin til 1 árs. Stjórn þakkaði þeim Svövu H. Friðgeirsdóttur fyrir sína setu í stjórn. Helga afhenti Davíði Stefánssyni landsliðsnefnd og Auði Haraldsdóttur úr mótanefnd og Svövu H. Friðgeirsdóttur úr stjórn rós fyrir sín störf. Hún hvatti sjálfboðaliða til að aðstoða sem mest á komandi dansári