Fjórfaldur sigur í Boston

Íslendingar unnu fjórfaldan sigur í Boston, Bandaríkjunum, um helgina. Daníel Sverrir Guðbjörnsson og Sóley Ósk Hilmarsdóttir (úr Dansíþróttafélagi Hafnarfirði- DÍH) unnu bæði u21 ballroom og Rising Star ballroom og voru í 6 sæti í Amateur ballroom. Kristinn Þór Sigurðsson og Lilja Rún Gísladóttir (einnig úr DÍH) unnu einnig bæði Amateur latin og U21 latin. Tristan Guðmundsson og Svandís Ósk (DÍH) voru í 5 sæti í U19 og 6 sæti í U21 latin. Bragi Geir Bjarnason og Magdalena Eyjólfsdóttir (úr Dansíþróttafélagi Kópavogs- DÍK) voru í  6 sæti í U19 latin og 8 sæti í u19 ballroom.

 
Íslenska landsliðið var svo í 6 sæti í liðakeppninni.