
Dansíþróttasamband Íslands
Dansíþróttasamband Íslands er samband allra héraðssambanda og íþróttabandalaga innan ÍSÍ sem hafa innan sinna vébanda félög er iðka, æfa og keppa í dansíþróttum.
Nýjustu fréttir

Frestun Íslands- og bikarmeistaramóts
Stjórn Dansíþróttasambands Íslands hefur ákveðið að fresta móti semátti að fara fram 24. til 25. apríl 2021.Íslandsmeistaramót í grunnsporum í hæsta getustigiBikarmótlatin, meistaraflokkurÍslandsmeistaramót í standarddönsum, meistaraflokkur. Óvissa hefur ríkt í...

Fyrsti keppandi stjörnuflokks á dansíþróttamóti á Íslandi
Um helgina keppti fyrsti einstaklingurinn í stjörnuflokki. Stjörnuflokkur er keppnisflokkur fyrir börn og fullorðna með fötlun. Sú sem braut blað í íslenskri dansíþróttasögu var hún Agata Erna Jack, en hún keppti með hjálp þjálfara síns henni Lilju. Óskum henni til...

Landslið

Fréttir

Úrslit móta

Mótaskráning

Lög og Reglur
DANSMÓT DSÍ 2025
25. jan 2025
RIG – Reykjavík International games Laugardalshöll
16. febrúar 2025 Fagralundi
Íslandsmeistaramót í standard meistaraflokkur
Bikarmót í latín, meistaraflokkur
Grunnsporamót
16. mars 2025 Strandgötu
Íslandsmeistaramót í latin, meistaraflokkurBikarmót í standard, meistaraflokkur
Bikarmót í hæsta getustigi í grunnsporum
17.-18. maí 2025
Íslandsmeistaramót í grunnsporum í hæsta getustigi
Íslandsmeistaramót 10 dönsum meistaraflokkur,
DSÍ Opin standard og latín dönsum
Junior Open
Ef þið hafið spurningar, ekki hika við að senda e-mail á dsi@dsi.is /bergrun@dsi.is
Dansíþróttapar ársins 2023

Dansíþróttasamband Íslands hefur kosið Nicolo Barbizi og Söru Rós Jakobsdóttur frá Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar sem Dansíþróttapar ársins 2023.
Þau eru búsett í Danmörku og á Íslandi þar sem þau stunda æfingar og ferðast á danskeppnir um Evrópu og víðar um heiminn. Þau keppa fyrir Íslands hönd og eru meðlimir í Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar.
Árið 2023 hefur verið viðburðarríkt hjá Nicolo Barbizi og Söru Rós Jakobsdóttur. Þau hafa reglulega keppt á opnum mótum erlendis fyrir Íslands hönd með góðum árangri ásamt alþjóðlegum stórmótum WDSF, en þau unnu sér keppnisrétt í öllum 3 greinunum, Standard, Latin og 10 dönsum, á Heims- og Evrópumeistaramót.
Stjórn DSÍ óskar dansíþróttapari ársins 2023 sem og öllum pörum sem tilnefnd voru til hamingju með árangurinn og bjarta framtíð

Dansíþróttasamband Íslands
Engavegi 6
104, Reykjavik Iceland
bergrun@dsi.is