dsi3.is

Danspör í Afrekshópi DSÍ 2010.

Unglingar II

Oliver Sigurjónsson og Rebekka Helga Sigurðardóttir (DR)

Magnús Eðvald Halldórsson og Anna Sóley Sveinsdóttir (DÍK)

Guðlaugur Agnar Valsson og Malín Agla Kristjánsdóttir (DR)

Birkir Örn Karlsson og Perla Steingrímsdóttir (DÍH)

Ungmenni

Sigurður Már Atlason og Sara Rós Jakobsdóttir (DÍH)

Björn Halldór Ýmisson og Hrefna Dís Halldórsdóttir (DÍH)

Valentin Loftsson og Tinna Björk Gunnarsdóttir (DÍH)

Freyþór Össurarson og Eyrún Stefánsdóttir (DR)

Fullorðnir 

Sigurður Þór Sigurðsson og Hanna Rún Óladóttir (DÍH)

Jón Eyþór Gottskálsson og Denise Yaghi (DÍH)

 

 

 

 

Reglur um val í afrekshóp

 Í afrekshóp DSÍ eru valin pör sem hafna í fjórum efstu sætunum í latín dönsum og  í standard dönsum og í tveimur efstu sætunum í keppninni í 10 dönsum. Hópurinn er valinn á hverju ári, eftir að úrslit eru ljós í þeim aldursflokkum sem greint er frá hér neðar, að loknum þessum þremur Íslandsmeistarakeppnum. Æfingartími hvers afrekshóps er frá því að hann er kynntur, að fyrstu keppni næsta árs á eftir.

 

 

 

Aldursflokkarnir og sæti á Íslandsmeistaramótum eru ákvörðuð með hliðsjón af þátttökurétti á HM, sem eru Unglingar II F, Ungmenni F og Fullorðnir F (1). Með þessu móti geta verið valin 10 pör úr hverjum aldurshópi, eða allt að 30 danspör. Verði hópurinn of stór áskilur Afreksnefnd DSÍ sér þann rétt að breyta fyrirkomulaginu við að velja pör í afrekshópinn, en miðað er við að hópurinn sé af stærðargráðunni 10-20 pör.

Ef eitthvert paranna hættir að dansa saman eftir að hafa verið valið í afrekshópinn þá fellur viðkomandi par út úr hópnum og önnur pör koma ekki í þeirra stað. Þessi regla á einnig við ef eitthvert þessara para kemur ekki á boðaðar æfingar án þess að tilkynna forföll í tíma. Þau pör sem  mæta sjaldnar en á 80% af æfingum Afrekshópsins eiga hættu á að vera vísað úr hópnum og eiga auk þess það á hættu að verða ekki valin í hópinn árið eftir þrátt fyrir að uppfylla ofannefnd þátttökuskilyrði. Sannanleg veikindi og keppnisferðir erlendis eru einu forföllin sem tekin eru gild.

Jafnframt er hægt að vísa danspörum úr Afrekshópnum ef afreksnefnd DSÍ eða stjórn  DSÍ verður vart við óíþróttamannslega hegðun dansara utan sem innan dansgólfsins. Hér er m.a. átt við neyslu áfengis eða annarra vímugjafa á æfingum eða keppnum, hér á landi sem erlendis.

Við sérstakar ástæður þá er stjórn DSÍ, í samráði við Afreksnefnd, heimilt að bjóða ár hvert gestadanspörum á lokaæfingu Afrekshópsins.

(1) Í móta- og keppendareglum DSÍ segir að í 5 og 5 dönsunum eru það pörin í fyrstu tveimur sætunum í þessum aldursflokkum sem vinna sér inn réttinn til að fara á Heimsmeistaramót og pörin í þriðja og fjórða sæti eru til vara. Í 10 dönsunum þá er það fyrsta sætið sem fær réttinn og er annað sætið sem er til vara.

 Þessar reglur er settar með hliðsjón af reglum IDSF um boð á Heimsmeistaramót, en þar segir að bjóða skuli frá hverju aðildarlandi tveimur pörum á Heimsmeistaramót í 5 og 5 dönsum og einu pari á 10 dansa Heimsmeistaramót. Með hliðsjón af þessu er valið í Afrekshóp á hverju ári og þau pör valin sem gætu fengið réttinn til að fara á Heimsmeistaramót en ekki pör sem geta ekki farið vegna þessa ákvæðis í móta- og keppendareglum DSÍ.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 AFREKSHÓPUR DSÍ 2009:
Nafn Aldursflokkur Félag

Andri Fannar og Helga Unglingar II DÍH
Oliver og Rebekka Unglingar II DR
Sigmar og Maren Unglingar II DR
Valentín og Tinna Unglingar II DÍH
Björn og Jóna Ungmenni DÍH
Freyþór og Eyrún Ungmenni DR
Sigurður Már og Sara Ungmenni DÍH
Þorkell og Hrefna Ungmenni DÍH
Aðalsteinn og Rakel Fullorðnir DÍH
Alexander og Lilja Fullorðnir DÍH
Jón Eyþór og Denise Fullorðnir DÍH
Sigurður Þór og Hanna Rún Fullorðnir DÍH



Í afrekshóp DSÍ 2009 eru valin pör sem höfnuðu í þremur efstu sætunum á nýloknum Íslandsmeistaramótum í latín dönsum, í standard dönsum og í 10 dönsum með frjálsri aðferð. Aldursflokkarnir eru ákvarðaðir með hliðsjón af þátttökurétti á HM, sem eru unglingar II, ungmenni og fullorðnir. Með þessu fyrirkomulagi fást í ár 12 pör, þar sem nokkuð er um endurtekningar á listanum. 12 pör er hæfilegur fjöldi, en mest gæti hópurinn orðið 3*9 = 27 pör, þ.e. 54 dansarar. Ef hópurinn verður of stór þarf að huga að öðru fyrirkomulagi við að velja pör í afrekshópinn, eins og að velja eingöngu efstu tvö pörin í hverjum hópi. Ef einhver þessara para hættir að dansa saman á árinu 2009 fellur viðkomandi par úr hópnum og önnur pör koma ekki í þeirra stað. Þessi regla á einnig við ef einhvert þessara para kemur ekki á boðaðar æfingar án þess að tilkynna forföll í tíma.

Dansíţróttasamband Íslands | Íţróttamiđstöđinni Engjavegi 6 | 104 Reykjavík | dsi@isi.is sími 514-4212 Dansíţróttasamband Íslands var stofnađ 18. maí 2000.
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is