dsi3.is

 16.05.2010
 16. maí 2010 Athugasemdir frá spora og klæðaeftirliti DSÍ
Athugasemdir frá spora- og klæðaeftirliti DSÍ vegna maí keppninnar 2010 og almennt um klæðnað keppenda.
Við erum sammála um að miklar framfarir hafa orðið á hvað keppendur/foreldrar og þjálfarar eru farnir að fara vel eftir klæðareglunum. Ekki þurfti að hafa afskipti af mörgum pörum og er það frábær þróun. Þau pör sem fengu aðvörun á staðnum tóku vel á móti athugasemdum og var nánast lagað það sem laga varð á staðnum með engum mótþróa. Það sem hefur verið að skapa klæðanefndinni óþægindum í vetur er að sumir danskjólar í barnaflokkunum eru með saumum í búk og belti sem skraut og mælum við ekki með þannig kjólum.Þeir eru mjög á „gráu svæði“ og ákváðum við að leyfa þá kjóla sem eru komnir í notkun en bendum öllum á að einfaldir einlitaðir barnakjólar koma alltaf best út. Eins hafa litlar stúlkur í barnaflokkum sumar hverjar verið farðaðar og eftir ábendingar frá klæðaeftirliti þá var því kippt í lag á staðnum. Einnig vonumst við til að kjólar með „hey hole“á baki verði ekki notaðir áfram.Nokkuð var um að dömur sáust í þannig kjólum í mars keppninni og fengu þær dömur aðvörun um að þetta væri ólöglegt og að þær yrðu að laga þetta.Nú komu nokkrar dömur í kjólum í barnaflokkum með „key hole“ en búið var að setja blúnduefni yfir gatið.Þetta er ekki löglegt en nú verðum við að vonast til að þessir kjólar verði teknir úr notkun,eða ekki notaðir aftur í barnaflokkum á DSÍ keppnum. Engin sjáanleg spor voru ólögleg en mikið var um ólögleg spor frá pörum utan af landi í mars keppninni sem hefur einnig verið kippt í lag. Við erum almennt mjög ánægðar með klæðnað keppenda og finnst okkur eins og að það sé greinilegt að keppendur/foreldrar svo og þjálfarar hafa lagt áherslu á að pörin skildu fylgja vel eftir reglunum. Virðingarfyllst: Auður Haraldsdóttir Svanhildur Sigurðardóttir Esther Inga Níelsdóttir

Dansíþróttasamband Íslands | Íþróttamiðstöðinni Engjavegi 6 | 104 Reykjavík | dsi@isi.is sími 514-4212 Dansíþróttasamband Íslands var stofnað 18. maí 2000.
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is