Fréttir frá Copenhagen Open, dagur 2.
Keppnin hófst kl.9.00 með Youth U21 standard.Það voru 67 pör sem hófu keppni,þar af 8 íslensk danspör.
Í 2.umferð (40 para) komust 4 íslensk pör áfram,Magnús/Elísabet frá DFR,Sigmar/Maren frá DR,Freyþór/Eyrún frá DR og Siggi/Sara frá DÍH.Síðan fóru Siggi og Sara í 3.umferð (24 para) og þar með lauk dansi íslensku paranna í þessum flokki.Sigurvegararnir voru frá Rússlandi.
Í Juvenile II Standard hófu 23 pör keppni,þar af 4 íslensk. Í undan úrslit komst aðeins eitt par áfram þau Elvar og Sara Lind frá DÍK.Þau eru að standa sig frábærlega vel þar sem þetta var flokkur 10-11 ára en þeirra rétti flokkur er 8-9 ára.
Í Junior Standard hófu 45 pör leik þar af 11 íslensk pör.3 pör dönsuðu sig inn í Undan-úrslit,þau Andri/Helga frá DÍH, Björn/Dröfn frá DÍK, Guðlaugur/Malín frá DR. Andri og Helga komust alla leið í úrslit og enduðu í 2.sæti.Glæsilegt hjá þeim.Enn og aftur voru það Rússarnir sem tóku gullið.
Í flokki U19 Standard hófu 59 pör keppni.Í 2.umferð (40 para) komust 4 íslensk pör áfram,þau Freyþór/Eyrún frá DR,Björn/Hrefna frá DÍH,Siggi/Sara frá DÍH og Sigmar/Maren frá DR.
Í 3.umferð (24 para) komust Freyþór/Eyrún,Björn/Hrefna og Siggi og Sara.
Í 4.umferð eða Undan-úrslit komust Siggi og Sara en þar með lauk keppni íslensku paranna í þessum sterka flokki og það voru heimsmeistararnir í 10 dönsum Youth frá Rússlandi sem sigruðu þessa keppni,þau Yuri Soldatov og Irina Gogoladze.
Í IDSF Amateur Latin voru 88 pör skráð til leiks.Siggi og Hanna dönsuðu mjög vel í þessari keppni og enduðu í 16.sæti.Sigurvegarar urðu Martino og Michelle frá Danmörku.
Kvöldið endaði svo á skemmtilegri uppákomu með danssýningu fyrrverandi heimsmeisturum,þeim Vibeke Toft og Alen Tornsberg.Verðlaunaafhendingin var ekki fyrr en um kl. 24.30,svo það voru ansi margir orðnir þreyttir eftir langan dag,en skemmtilegan!!!
|