Keppnin hófst kl.10 með Junior Combi (samanlögðum árangri), 35 pör hófu keppni.
Í 24 para (2.umferð) komust af íslensku pörunum þau Andri/Helga frá DÍH, Bergþór/Stella frá DÍH, Birkir/Rakel frá DÍK, Björn/Dröfn frá DÍK, Guðlaugur/Malin frá DR og Teitur/Anita frá frá DÍK.Í 12 para Undan-úrslit og síðan í 6 para úrslit komust Andri Fannar og Helga Sigrún og sigruðu þessa keppni.Það var mikill sigur okkar íslendinga að ná gullinu í dag því það má segja að þessi keppni í ár keim af "landa-einvígi" milli Rússa og Íslendinga.Það tóku allir Íslendingarnnir í salnum undir þegar íslenski þjóðsöngurinn var spilaður og ég er ekki frá því að einhversstaðar féllu gleðitár!!
Í flokki Juvenile I barna (8-9 ára) sigruðu þau Elvar og Sara Lind frá DÍK með miklum glæsibrag. Það voru 4 pör í þessum flokki, 2 frá Danmörku,1 frá Rússlandi og okkar par, þau Elvar og Sara Lind. Þau komu, sáu og sigruðu!!!
Í keppninni U 19 latin kepptu 56 pör.
Í 2.umferð komust af íslensku pörunum þau Björn/Hrefna frá DÍH, Freyþór/Eyrún frá DR,Kristófer/Arna frá DÍK og Siggi/Sara frá DÍH.
Í 24 para (3.umferð) komust Freyþór/Eyrún,Björn/Hrefna og Siggi/Sara.
Í 12 para Undan-úrslit komust Björn/Hrefna og Siggi/Sara.
Í Úrslit og dönsuðu sig inn í 3.sætið voru Siggi og Sara sem dönsuðu úrslitin af miklum krafti og sást greinilega að þau voru vel samæfð enda eiga þau 10 ára dans-afmæli í ár.Gera aðrir betur:))
Í IDSF Adult Standard kepptu 79 pör.
Þetta var rosalega sterk keppni með innanborðs t.d fyrrverandi heimsmeistara í Youth 10 danasa og fleiri hákarla-pör.
Jón og Denise komust í eina umferð eftir milliriðil og þar með lauk dansi íslensku paranna í þessum flokki.
Sigurvegarar voru þau Emanuel og Tania frá Danmörku.
Keppninni lauk í kvöld um kl.21.00.Það verða mjög sáttir og þreyttir íslendingar sem koma til Íslands á morgun mánudag eftir langa,skemmtilega og lærdómsríka keppnisdaga í kóngsins Köbenhavn.
Dansíţróttasamband Íslands | Íţróttamiđstöđinni Engjavegi 6 | 104 Reykjavík | dsi@isi.is sími 514-4212 Dansíţróttasamband Íslands var stofnađ 18. maí 2000.