Íslandsmeistaramót í 10 dönsum fyrir F hópa fer fram í Smáranum, Kópavogi um næstu helgi eða Laugardaginn 20. mars og sunnudaginn 21. mars 2010. Keppnin hefst kl. 12:00 báða dagana.
Samhliða Íslandsmeistaramótinu fer fram Bikarmót hjá K og KD flokkum og keppni í samkæmisdönsum með grunnaðferð hjá A og AD flokkum svo og danssýningar hjá B flokkum.
Það verða 5 erlendir dómarar sem dæma keppnina, þeir eru frá Danmörku, Frakklandi, Lettlandi, Þýskalandi og Bretlandi. |