Adam og Karen landsliðsþjálfarar!
Dansíþróttasamband Íslands hefur gengið frá samningi við þau Adam Reeve og Karen Björk Björgvinsdóttur Reeve að þau taki að sér að vera landsliðsþjálfarar fyrir íslenska afrekshópinn í dansi. Samningur þessi er til 5 ára. Nýtt landslið verður valið árlega þegar Íslandsmeistaramótunum í 5 og 5 dönsum og í 10 dönsum fyrir F-flokka er lokið. Landsliðsþjálfarar hafa einnig heimild til að velja önnur pör sem þeir telja að eigi erindi í landsliðið en þessi pör verða ávallt í sama aldursflokki og Afrekshópur DSÍ er valin úr.
Með ráðningu landsliðsþjálfara vonast stjórn DSÍ að styrkja og efla íslenska dansara.
Adam og Karen þarf ekki að kynna en þau hafa tekið að sér einkaþjálfun dansara hér á landi síðastliðin ár. Þau kepptu fyrir Íslandshönd í fjölda mörg ár og náðu því afreki að verða heimsmeistarar í 10 dönsum árið 2003 og Evrópumeistarar árið 2000. 2001 og 2002.
|