Blackpool,mánudagur 5 april (dagur 1)
Hér koma úrslit dagsins.
Juvenile (11 ára og yngri) kepptu eingöngu í Jive í dag.84 pör voru skráð til keppni þar af 10 íslensk danspör.
Eyþór og Marta frá DFR komust í 24 para og Gísli og Þorbjörg frá HK komust í 24 para og alla leið í undan-úrslit komust Höskuldur og Margrét frá DÍH.Glæsilegt hjá þessum pörum og mátti sjá íslenska fánann á lofti víða þegar kom að undan-úrslitunum og skapaðist mikil stemmning í höllinni sem vakti athygli viðstaddra. Greinilega mesta hvatningin hjá íslensku áhorfendunum:)Það var par frá Rússlandi sem vann í dag Jive keppnina.
Junior I (12-13 ára) kepptu í Foxtrot/Tango.63 pör hófu keppni þar af 7 íslensk.3 pör komust í 48 para eða í 2.umferð,þau Davíð og Rakel frá DÍH,Birkir og Perla frá DÍH og Kristófer og Herborg frá HK. Í 3.umferð eða í 24 para komust þau Birkir og Perla ásamt Kristófer og Herborgu.Sigurvegarar voru Luke Miller og Hannah Cresswell frá Englandi.
Junior (12-15 ára) kepptu í Vínar Valsi og voru 164 pör skráð til leiks og þar af 13 íslensk. Í 48 para úrslit komust 2 íslensk pör,þau Valentín og Tinna frá DÍH og Sigmar og Maren frá DR.
Það er töluverð fækkun í öllum hópum frá því í fyrra,t.d eru örfá pör frá Rússlandi og nánast engin frá Ítalíu.
Kær kveðja,
Auður Haraldsdóttir
|