|
Þetta er búið að vera frábær dagur hjá okkur Íslendingum hér í
Blackpool
í dag:-)
Í Juvenile kepptu 84 pör í stóru Ballroom keppninni þar af 9 íslensk pör.Gísli og Þorbjörg frá HK komust í 2.umferð eða í 48 para og Eyþór og Marta frá DFR komust í 24 para og alla leið í úrslit og í 2.sætið þau Höskuldur og Margrét frá DÍH.Þau áttu frábæran dag,dönsuðu af miklu öryggi og með fallega útgeislun.Þau fengu í 1.sæti í Foxtrot,2.sæti í Tango,3.sæti í Quickstep og 6.sæti í Vals.Sigurparið var frá Ukraínu.
Junior landakeppnin fór fram með hefðbundnum hætti.Keppt var bæði í Ballroom dönsum og í Latin dönsum.Það voru 7 lönd sem kepptu en þetta er meira skemmtun en alvara og myndast alltaf mjög skemmtilegt og spennandi andrúmsloft á keppninni þegar áhorfendur klappa fyrir sínum löndum lof í lófa.Ísland var í 2.sæti í landakeppninni en Ukraína vann.
Junior hópurinn keppti í Sömbu í dag.192 pör hófu keppni þar af 14 íslensk.Í 2.umferð eða í 105 para komust Andri/Helga frá DÍH,Valentín/Tinna frá DÍH,Davíð/Rakel frá DÍH og Sigmar/Maren frá DR.Í 3.umferð eða í 48 para komust Oliver/Rebekka frá DR og Pétur/Anita frá HK.Þar með lauk keppni Íslensku dansaranna í Sömbu keppninni.
Junior I (12-13 ára)keppti í Rumbu/Cha cha keppni einnig í dag.Það voru 70 pör skráð til leiks þar af 7 íslensk pör.Í 2.umferð eða í 48 para komust Kristófer/Herborg frá HK og Brynjar/Helga frá DFR.Í 3.umferð eða í 24 para komust þau Pétur/Anita frá HK og Birkir/Perla frá DÍH.Í Undan-úrslit komust Davíð og Rakel frá DÍH.Þetta var glæsilegt hjá Davíð og Rakel að komast þetta langt þar sem þau eru á fyrra árinu í þessum aldursflokki.
kær kveðja,
Auður Haraldsóttir |